Í myndbandi sem dreift hefur verið undanfarna daga á samfélagsmiðlum er því haldið fram að Friedrich Merz Þýskalandskanslari íhugi að segja af sér. Í myndbandinu er vísað í Deutsche Welle og Handelsblatt sem báðir eru virtir fjölmiðlar í Þýskalandi. Báðir þessir miðlar segja að myndbandið sé að öllu leyti falsað en eins og oft áður er sannleikskorn í áróðrinum.
Þýskir fjölmiðlar hafa sagt frá umræðu um að Merz ætti að íhuga að láta öðrum manni eftir stól kanslara. Sú umræða hefur oftar en ekki snúist um manninn sem nefndur er í myndbandinu, Hendrik Wüst, sem er forsætisráðherra í Nordrhein-Westfalen. Allt þetta hefur ítrekað verið borið til baka.
Ekki eina dæmið
Myndbandið um Merz er hins vegar aðeins ein af fjölmörgum falsfréttum sem dreift hefur verið á samfélagsmiðlum í Þýskalandi að undanförnu. Birtar hafa verið myndir af forsíðum þriggja útbreiddra dagblaða í Þýskalandi með upplognum fyrirsögnum um aukna spennu milli Þjóðverja í vestur- og austurhluta landsins.
Allt er þetta í aðdraganda fjögurra kosninga í sambandsríkjum í austurhluta Þýskalands. Þýsk stjórnvöld telja að falsfréttunum sé dreift af hópi sem kallast Storm 1516. Hópurinn er talinn tengjast leyniþjónustu rússneska hersins. Áróðursherferðin virðist beinast að leiðtogum og frambjóðendum allra flokka nema vinstri flokki Söru Wagenknecht, og AfD, Alternative für Deutschland, fjarhægriflokknum sem gæti fengið hreinan meirihluta í einu þessara ríkja.
Þessar tilraunir til að draga úr trausti og skapa úlfúð eru ekki aðeins bundnar við netheima. Nýleg drónaárás á flugvellinum í Leipzig í Þýskalandi er einnig sett í þetta samhengi.