Yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu er hvorki tilbúinn til að staðfesta né hafna því að manndráp hafi verið framið á Kársnesi í Kópavogi fyrr í dag.Þetta kom fram í samtali DV við Elínu Agnesi Eide sem segir lögreglu ekki hafa staðfest manndráp. Hún segir:„Það er einhver frétt þarna á RÚV.“Aðspurð hvort sú frétt sé ekki rétt þá segir hún: „Ég er bara að fara að hitta mitt fólk og tek símann á eftir.“
Lögregla hvorki staðfestir né hafnar frétt RÚV um manndráp á Kársnesi