Lögregla rannsakar manndráp á Kársnesi í Kópavogi í dag. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að maðurinn sem varð fyrir alvarlegri líkamsárás í Kópavogi í dag lést á Landspítalanum síðdegis.
Einn var handtekinn fljótlega eftir að málið kom upp og nokkrir til viðbótar í aðgerðum lögreglu í austurhluta Reykjavíkur. Ekki er víst hvort þar sé átt við mikinn viðbúnað lögreglu í verslunarkjarna í Skeiðarvogi í Reykjavík. Vísir greindi frá. Minnst sex lögreglubílar og einn sérsveitarmaður hafi verið á vettvangi.
Fjölmennt lið lögreglu og sjúkraliðs sinnti útkallinu í Kópavogi um klukkan þrjú í dag. Tveir sjúkrabílar voru sendir á vettvang, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu, sem staðfesti að einn hafi verið fluttur á slysadeild.
Í tilkynningu lögreglunnar segir að rannsókn málsins sé í algjörum forgangi hjá embættinu, en ekki verða veittar frekari upplýsingar að svo stöddu.
Fréttin hefur verið uppfærð.