Einar Valsson, aðgerðarstjóri hjá Landhelgisgæslunni, segir í samtali við fréttastofu að maðurinn sé líklega ökklabrotinn, eftir að hafa hrasað.
Maðurinn sé í gili og aðkoman því erfið.
Útkallið barst um tíuleytið og þyrlan fór í loftið tuttugu mínútur í ellefu.