Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands er sagður vera að íhuga stöðu sína sem leiðtogi Verkamannaflokksins og forsætisráðherra yfir helgina.
The Times segir að nokkrir ráðherrar í ríkisstjórn hans hafi hvatt hann til að láta gott heita, eftir að Andy Burnham, borgarstjóri Manchester, tryggði sér þingsæti fyrir Verkamannaflokkinn í aukakosningum í Makersfield-kjördæmi á Englandi á fimmtudaginn.
Starmer hefur sagt opinberlega að hann ætli að berjast gegn hvers kyns leiðtogaáskorun frá Burnham. The Times hefur eftir ónefndum heimildarmanni sem er náinn forsætisráðherranum að afstaða Starmers væri þó ekki skýr. Starmer er sagður ætla að ræða málin við eiginkonu sína og fjölskyldu um helgina um það hvort hann haldi áfram að berjast fyrir stöðu sinni eða ekki.
Burnham og Starmer ætla að funda eftir helgi. Stuðningsmenn Burnhams segja að hann ætli að greina Starmer frá lista með nöfnum 200 þingmanna Verkamannaflokksins sem séu tilbúnir að styðja hann, komi til þess að skipt verði um í brúnni.
Þá er Burnham sagður ætla að hitta Wes Streeting, fyrrum heilbrigðisráðherra, um helgina og ætla að bjóða honum hátt setta stöðu í ríkisstjórninni til að koma í veg fyrir mótframboð Streeting, ef kosið verður um nýjan formann Verkamannaflokksins.