Einn er látinn og áttatíu og níu eru særðir, þar af ellefu alvarlega, eftir að tvær lestir skullu saman á Englandi á fimmta tímanum að íslenskum tíma í dag. Slysið varð nálægt bænum Bedford skammt norður af London en báðar lestar voru á leið á Saint Pancras lestarstöðina í London. Samkvæmt Sky News hafði önnur lestin numið staðar á lestarteinunum og hin ekið aftan á hana. Miklar tafir hafa orðið á lestarferðum á svæðinu vegna slyssins.
Fréttin verður uppfærð