Alþingi samþykkti í dag að koma á fót nýrri stofnun með öryggisgæslustað fyrir 16 einstaklinga sem þurfa á sérhæfðri þjónustu að halda og ekki er talið viðeigandi að vista í fangelsi.
Frumvarpið var lagt fram af Ragnari Þór Ingólfssyni, félags- og húsnæðismálaráðherra, og var samþykkt af öllum viðstöddum þingmönnum.
Á öryggisgæslustaðnum verða vistaðir einstaklingar sem dæmdir hafa verið fyrir alvarleg brot en eru taldir ósakhæfir eða refsing ekki talin líkleg til að bera árangur. Þá verða þar einnig vistaðir einstaklingar sem lokið hafa afplánun og talið er að þurfi slíka vistun.
Fyrir þá sem eru verulega hættulegir samfélaginu
Lagafrumvarpið um framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn var unnið í tíð Ingu Sæland, fyrrum félags- og húsnæðismálaráðherra, og Ragnar Þór mælti síðan fyrir því.
Í tilkynningu frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu segir að ríkið hafi þegar tryggt sér lóð undir stofnunina og öryggisgæslustaðinn á Hólmsheiðarsvæðinu.
Heimildin til að vista menn á öryggisgæslustaðnum að lokinni afplánun í fangelsum var tekin upp með frumvarpi Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra, sem einnig var samþykkt í dag.
Heimilt verður, að ströngum skilyrðum uppfylltum, að vista einstakling áfram eftir lok afplánunar ef hann hefur gerst sekur um alvarlegt afbrot og telst áfram verulega hættulegur samfélaginu.
Ragnar Þór telur að með þessum breytingum sé vörður staðinn um mannréttindi og réttláta málsmeðferð þeirra sem um ræðir en á sama tíma gætt að öryggi almennra borgara.