Frumvarp sjálfstæðismanna um afnám stimpilgjalds vegna kaupa einstaklinga á íbúðarhúsnæði var fellt á Alþingi í dag.
Sjálfstæðismenn hafa lagt frumvarpið fram á ári hverju í áraraðir.
20 þingmenn stjórnarandstöðunnar kusu með frumvarpinu en 32 þingmenn stjórnarmeirihlutans greiddu atkvæði gegn því.
Var málið eitt fjögurra mála stjórnarandstöðunnar sem voru á dagskrá þingfundar í dag.
Ekki trúverðug rök
Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, gerði grein fyrir atkvæði sínu en hann sagði um ágætismál að ræða en að enginn ábyrgur stjórnarmeirihluti myndi hins vegar samþykkja breytingar á fjárlögum sem hreyfa tekjuhliðina um fleiri milljarða án þess að það sé gert að vel athuguðu máli. Því kysi Viðreisn gegn frumvarpinu.
Hildur Sverrisdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson og Ingveldur Anna Sigurðardóttir, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, komu einnig í ræðustól til að gera grein fyrir atkvæði sínu.
Sagði Guðlaugur Þór það ekki trúverðug rök hjá stjórnarliðum að þeir væru einfaldlega að horfa í afkomu ríkissjóðs. Ríkisstjórnin hafi samviskusamlega aukið útgjöld sjóðsins eins mikið og hægt er.
Voru Hildur og Ingveldur sammála um að málið yrði ungu fólki til mikilla hagsbóta. Hildur sagði furðulegt að ekki væri stigið það skref að einfalda fólki lífið á húsnæðismarkaði eins og hann er um þessar mundir.