Lokaundirbúningur fyrir tónleikahátíðina Bergmál, sem fer fram á Þingvöllum á morgun, er í fullum gangi. Um hundrað manns hafa komið að undirbúningi alla daga frá því á mánudag að vinnu lögreglu undanskilinni.
Dagskráin er þétt pökkuð en fjöldi þekktra listamanna kemur fram. Ásamt hljómsveitinni Kaleo, sem stendur að hátíðinni, spila Stuðmenn, Emiliana Torrini, GDRN og Helgi Björns svo einhver séu nefnd.
Mikil tilhlökkun er meðal skipuleggjenda hátíðarinnar. „Almennt er stemningin bara mjög góð og síðustu miðarnir eru að rjúka út, rúturnar að fyllast, bílastæði að fyllast þannig við erum bara mjög sátt við allar viðtökur og allt sem við blasir,“ segir Jakob Frímann Magnússon, einn skipuleggjenda.
Gagnrýnisraddir hafa verið uppi um að halda svo fjölmennan viðburð í þjóðgarðinum. Þá hefur borið á að fólki finnist reglur of strangar. Ekki má koma með tjaldstóla, regnhlífar eða mat og drykk inn á svæðið. Jakob ber reglurnar saman við reglur veitingahúsa. „Ef það eru sérþarfir, barnamatur eða eitthvað slíkt, þá er það auðvitað sjálfsagt en menn eru ekki mikið að bera með sér matar- eða drykkjarföng á veitingahús og það er ekki meiningin hér.“
Vill smala Íslendingum aftur saman á Þingvöllum
Hljómsveitarmeðlimir Kaleo eru spenntir fyrir morgundeginum. Davíð Antonsson, trommari Kaleo, segir tilfinninguna vera ólýsanlega. „Það er ótrúlega gaman að sjá þetta verða að veruleika.“
Jökull Júlíusson, söngvari hljómsveitarinnar, segir það lengi hafa verið draum að halda tónleika á Þingvöllum. Hann eigi góðar minningar frá því að hann var fjögurra ára á Þjóðvegahátíðinni 1994.
„Minn draumur er að smala Íslendingum aftur saman á Þingvöllum. Maður kemur varla orðið hingað nema með útlendinga til að sýna þeim þjóðgarðinn fallega þannig ég hlakka gífurlega til að búa til góðar minningar með Íslendingum.“
Mikill viðbúnaður lögreglu
Lögreglan á Suðurlandi verður með mikinn viðbúnað í kringum tónleikana. Jón Gunnar Þórhallsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir að meginmarkmiðið sé að tryggja öryggi hátíðargesta. Ætla má að um 100 lögreglumenn muni koma að löggæslu í kringum hátíðina. Fleiri deildir lögreglunnar koma að verkefninu, til að mynda umferðardeildin.
Spurður um strangar öryggisreglur segir Jón Gunnar að reglurnar þyki sjálfsögð öryggiskrafa á svona stórum viðburði. „Það er okkar að tryggja öryggi og þetta er partur af því.“
Jón Gunnar hefur ekki áhyggjur af umferðaröngþveiti á leiðinni til og frá Þingvöllum. Hann segir að skipulagið af hálfu lögreglunnar sé gott. Hann ítrekar fyrir gestum að fylgjast vel með upplýsingum á samfélagsmiðlum lögreglunnar og hátíðarinnar, skoða vel kort af hátíðarsvæðinu, sýna þolinmæði og fylgja leiðbeiningum á svæðinu.