Lögreglan á Austurlandi komst á snoðir um eggjaþjófnað og smygltilraun með greiningu á farþegalista Norrænu. Par var handtekið í síðustu viku á Seyðisfirði á leið úr landi með fimm lifandi hrossagauksunga og rúmlega hundrað egg frá villtum íslenskum fuglum, sumum alfriðuðum.
Óskar Þór Guðmundsson, lögreglufulltrúi á Austurlandi, segir lögreglu ekki hafa fengið ábendingu um eggjaþjófnaðinn.
„Við erum búin að vera undanfarin ár að þróa okkur áfram í greiningu á farþegum og erum í mjög góðu samstarfi við Tollgæsluna við það og þetta í rauninni bara kemur upp úr farþegagreiningu,“ sagði Óskar Þór í Síðdegisútvarpinu.
„Við undirbúum komu ferjunnar í hverri viku og erum búin að skoða hvaða aðilar eru á farþegalistunum. Auðvitað beitum við handahófskenndri aðferðafræði líka þegar við erum að velja hverjir eru teknir til skoðunar en mikið af því sem við erum að gera er bara árangur af greiningu.“
„Menn svífast einskis í þessu eins og öðru“
Eggin voru geymd í sérútbúnum hitatöskum í bíl parsins og fundust við leit tollgæslu og lögreglu. Óskar Þór sagði þær ekki hafa verið sérstaklega faldar.
„Þetta tekur svo sem ekki mikið pláss, þessi egg. Þetta eru bara tvær hitatöskur. Þegar þær voru opnaðar kom í ljós bæði lifandi ungar og svo talsverður slatti af eggjum,“ segir Óskar Þór og bætir því við að sennilega hafi ungarnir klakist út í hitatöskunum.
„Það fór nú bara vel um þá þarna.“
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem lögreglan á Austurlandi kemur upp um álíka þjófnað.
„Ég held að þetta sé ekki algengt en það er alveg örugglega eitthvað um þetta,“ segir Óskar Þór. Hann bendir á að það geti verið töluverðir peningar í spilinu og tekur fálka sem dæmi.
„Þú getur fengið fullt af peningum fyrir að ná svona eggi og ég segi nú ekki ef þú getur klakið út unga. Þannig að menn svífast einskis í þessu eins og öðru.“
Nú er þetta fólk sektað. Er hægt að gefa upp hve há sektin var?
„Nei, ég held ég sé kannski ekkert endilega að fara með það í loftið. En það er verulegur peningur, það er eitthvað sem alla munar um.“