Karlmaður hefur verið dæmdur í 16 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn átta stúlkum á aldrinum 12–14, en brotin áttu sér stað í gegnum samskiptaforritið Snapchat á árinu 2022.Samkvæmt ákæru viðhafði maðurinn kynferðislegt tal við stúlkurnar, sendi þeim kynferðisleg myndbönd og fékk, eða reyndi að fá þær, til að senda sér kynferðislegar myndir af sjálfum sér. Hann særði þannig blygðunarsemi stúlknanna og sýndi þeim ósiðlegt athæfi.
Skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn átta stúlkum á aldrinum 12-14 ára