Skerðingar á gildistíma ökuskírteina hefjast nú ekki fyrr en við 70 ára aldur í stað 60 ára eins og hefur verið.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í fréttatilkynningu Miðflokksins en frumvarp flokksins um gildistíma ökustírteina var samþykkt á Alþingi í dag.
Kröfum um endurnýjun mun fækka
„Kröfum um endurnýjun ökuskírteina mun fækka verulega. Til að mynda á 20 ára tímabili mun kröfum um endurnýjun ökuskírteina fækka úr ca. 18 skiptum niður í 4 skipti,“ segir í tilkynningunni.
Í dag séu yfir 75 þúsund einstaklingar sem frumvarpið nær til.
Gildistími eftir lagabreytingu:
- 70–75 ára tíu ár,
- 76 ára níu ár,
- 77 ára átta ár,
- 78 ára sjö ár,
- 79 ára 6 ár,
- 80–83 ára fimm ár,
- 84–85 ára fjögur ár,
- 86–87 ára þrjú ár,
- 88–89 ára tvö ár,
- 90 ára eða eldri eitt ár.