Greifarnir fagna um þessar mundir 40 ára afmæli hljómsveitarinnar og ætla meðal annars að rifja upp gömlu sveitaballastemninguna með tónleikaferðalagi um landið sem þeir kalla Síðasta sveitaballið. Meðlimir sveitarinnar, þeir Viddi og Bjössi, voru gestir í Popparasögum þar sem þeir fóru yfir ferilinn, skyndilega frægðina, kostnaðinn sem fylgdi velgengninni og hvernig íslenski tónlistarbransinn hefur breyst á fjórum áratugum.
Upplifðu mikla athygli og áreitni á hátindi frægðarinnar: „Við þurftum að vera með leyninúmer. Það var hringt allan sólarhringinn“