Ítalir brugðust ókvæða við í dag vegna ummæla Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um Giorgiu Meloni forsætisráðherra landsins í ítölskum fjölmiðlum.
Trump sagði í símaviðtali við ítalska fjölmiðilinn La7 TV að Meloni hefði sárbeðið um mynd með sér á fundi G7-ríkjanna í vikunni.
AFP-fréttaveitan hefur undir höndum skriflegt afrit af viðtalinu sem hún fékk hjá sjónvarpsstöðinni.
„Hún sárbað mig um að taka mynd með sér, ég vorkenndi henni. Hún hefur sennilega verið glöð að ég talaði við hana,“ sagði Trump í viðtalinu. Rödd hans heyrðist þó ekki þar sem ítölsk rödd talaði yfir viðtalið.
Meloni brást við ummælunum með því að birta myndskeið á samfélagsmiðlum. Þar sagðist hún hreinlega orðlaus yfir þeim og sagði frásögn Trump uppspuna frá rótum.
„Ákveðnir hlutir verðskulda að strax sé brugðist við þeim. Yfirlýsingar Donalds Trumps eru algjör uppspuni frá rótum. Ég veit ekki hvers vegna Bandaríkjaforseti hagar sér svona við bandamenn. Þetta er eftir allt saman ekki í fyrsta skipti sem það gerist.“
Hún sagði að sér þætti leitt að hann væri ekki eins ákveðinn gagnvart óvinum Vesturlanda og Bandaríkjanna og þjóðarleiðtogum sem hann væri í staðinn liðlegri gagnvart.
„En hann verður að muna eitt: Hvorki ég né Ítalía sárbiðjum um neitt.“
Sterk viðbrögð
Meloni og Trump sáust eiga mörg samtöl í Évian-les-Bains í Frakklandi þar sem fundur G7-ríkjanna var haldinn. Þjóðarleiðtogarnir hafa átt náið samband í gegnum árin og Meloni sagði við fjölmiðla á fundinum að samband þeirra væri óbreytt.
Hún hefur þó verið opinská í andstöðu sinni við stríði Bandaríkjanna við Íran. Spenna hefur verið milli hennar og Trumps eftir að hann gagnrýndi ítölsk stjórnvöld fyrir að neita að leyfa Bandaríkjaher að nota flugstöð á Sikiley í stríðinu.
Hann sagði Meloni hafa breyst og sakaði hana um að verja Leó páfa eftir að hann gagnrýndi stríðið. Meloni sagði ummæli Bandaríkjaforseta um páfann óásættanleg.
Ítalskir stjórnmálamenn hafa brugðist ókvæða við nýjustu ummælum Trumps og sagði Sergio Mattarella, forseti Ítalíu, meðal annars að hann hafi hringt í Meloni til að lýsa yfir stuðningi við hana um leið og viðtalið við Trump hafi verið birt.
Filippo Sensi, þingmaður úr stjórnarandstöðunni, sagði engan hafa rétt til þess að tala á þennan hrokafulla hátt við forsætisráðherra.
Giuseppe Conte, leiðtogi Fimm stjörnu hreyfingarinnar, sagði Ítalíu ekki verðskulda slíka niðurlægingu og bætti við að það að sækjast eftir greiða hjá stjórnvöldum í Bandaríkjunum ætti aldrei að vera á kostnað þjóðarvirðingar og hagsmuna.
Lucio Malan, flokksbróðir Meloni í Bræðrum Ítalíu og leiðtogi efri deildar þingsins, sagði orð Trumps vera hluta af víðtækara mynstri móðgandi ummæla sem hann hafi beint gegn ýmsum leiðtogum Evrópu. Þau væru fyrst og fremst til að skaða ímynd og vald hans sjálfs.
Síðdegis tjáði Pedro Sanchez, forsætisráðherra Spánar, sig um málið og sagðist standa með henni. Hann segi það ekki aðeins opinberlega við fjölmiðla heldur hafi hann einnig tjáð henni samstöðu sína í einrúmi á fundi leiðtogaráðs ESB.