„20 mínútur yfir fjögur? Þessu trúði ég ekki.“
Alþingi hefur verið slitið og fundum frestað til 8. september. Mörg mál kláruðust á lokametrunum á meðan önnur þurfa að bíða.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, sleit þingfundi rétt í þessu og er fundum frestað til 8. september.
Virtist hún nokkuð hissa á því hversu vel gekk að klára þingstörfin í dag. „20 mínútur yfir fjögur?“ heyrðist Þórunn segja í útsendingu frá Alþingi eftir að hún sleit fundi. „Þessu trúði ég ekki.“
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagðist mundu sakna margra, ef ekki allra þingmanna, í sumar en sagði þingheim hafa gott af því að vera nokkrar vikur í sundur. Skömmu áður hafði Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokks, flutt gamansama ræðu við mikla kátínu viðstaddra.
Frumvarp þingmanna Miðflokksins og annarra þess efnis að lengja gildistíma ökuskírteina eldri borgara var samþykkt og varð að lögum. Að tillögu allsherjar- og menntamálanefndar var hópi manns veittur ríkisborgararéttur.
Stuðningur við einkarekna fjölmiðla var lögfestur sem og frumvarp velferðarnefndar um matsverð fasteigna í Grindavík. Frumvarp umhverfis- orku- og loftslagsmálaráðherra um meðferð virkjunarhugmynda í vindorku innan verndar- og orkunýtingaráætlunar …