Regluvörður 2026, ný og endurbætt útgáfa af golfleik Varðar og Golfsambands Íslands, hefur litið dagsins ljós. Þar geta kylfingar bætt þekkingu sína á golfreglum á skemmtilegan hátt en þúsundir hafa spilað fyrri útgáfur. Nýja útgáfa leiksins býður upp á betri leikjaupplifun og fleiri áskoranir. Hægt er að spreyta sig á hundruðum spurninga og safna stigum sem telja bæði fyrir einstakling og golfklúbb kylfingsins. Til að hljóta nafnbótina „Regluvörður 2026“ þarf að ná yfir 6.000 stigum í einum leik.
Vörður og GSÍ kynna nýja útgáfu af Regluverði