Þá hittum við mótmælandann Hólmstein Harðarson sem sigldi með hvalveiðiskipi upp í Hvalfjörð í gær. Hann segist hafa brotnað niður þegar hann áttaði sig á því að skipið var á leið út á sjó.
Við verðum einnig í beinni frá þinginu sem er að ljúka störfum í dag og kíkjum í hljóðprufu hjá Kaleo á Þingvöllum. Hljómsveitarmeðlimir hvetja gesti til þess að skemmta sér fallega á stórtónleikunum á morgun.
Þá sjáum við myndir frá bíladögum á Akureyri og kíkjum í jólaþorpið þar sem hinni gamalkunnu Bifreiðastöð Oddeyrar hefur verið komið fyrir.
Í Sportpakkanum rýnum við auðvitað í árangur Gunnlaugs Árna á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi og förum á Akranes þar sem Norðurálsmótið stendur nú yfir.
Þetta og margt fleira á samtengdum rásum Sýnar, Vísis og Bylgjunnar klukkan 18:30.