Síðastliðinn sólarhring höfðu fjórir ísraelskir hermenn fallið og fjörutíu og sjö Líbani, samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum.
Áframhaldandi skærur hefðu sett friðarsamkomulag Bandaríkjastjórnar við klerkastjórnina í Íran í uppnám. J.D. Vance, varaforseti Bandaríkjanna, hætti við för sína til Sviss til friðarviðræðna við Írani eftir að fréttir bárust af harðnandi átökum í Líbanon.
Vopnahléið virðist því miður meira vera í orði en á borði en í fréttavakt BBC um málið kemur fram að fréttaritari þeirra á staðnum hafi talið tólf loftárásir af hendi Ísraelsmanna frá því að tilkynnt var um samkomulagið.