Björgunarsveitir í Árnessýslu brugðust við útkalli við Háafoss í Þjórsárdal í dag.
Þetta staðfestir Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar. Þar hafði einstaklingur slasast í bröttu og erfiðu landslagi og reyndi því talsvert á björgunarsveitarfólk að koma viðkomandi undir hendur sjúkraflutningafólks.
Jón Þór segir manneskjuna líklega fótbrotna og komna í sjúkrabíl, en að öðru leyti sé honum ekki kunnugt um ástand viðkomandi.