Nova Klúbburinn, sem rekur fjarskiptafélagið Nova, hefur gengið frá kaupum á öllu hlutafé Ofar. Greint var frá því í febrúar að félögin hefðu undirritað samning um kaupin sem nema 4,4 milljörðum króna. Þá kom fram að fyrirtækin verði þó rekin hvort í sínu lagi.
Í fréttatilkynningu segir að gengið hafi verið frá kaupunum í dag. Með þeim verði Ofar hluti af samstæðu Nova Klúbbsins frá og með 1. júní síðastliðnum.
„Í ljósi þess mun Nova Klúbburinn endurskoða útgefnar fjárhagslegar horfur fyrir árið í heild og birta á markaði svo fljótt sem unnt er. Endanlegt heildarvirði (e. Enterprise value) kaupanna að teknu tilliti til nettó stöðu veltufjármuna og hreinna vaxtaberandi skulda á uppgjörsdegi nemur 4.349 m.kr. sem greiðist með nýju láni, að fjárhæð 2.700 m.kr., og handbæru fé,“ segir í tilkynningunni.
Stjórn Ofar verður skipuð af Þórhalli Jóhannssyni, fjármálastjóra Nova Klúbbsins, Jóni Björnssyni, forstjóra Veritas, og Sylvíu Kristínu Ólafsdóttur, forstjóra Nova Klúbbsins, sem jafnframt verður stjórnarformaður. Nýr framkvæmdastjóri hefur ekki verið ráðinn.
Þá segir í tilkynningunni að Ofar muni að öðru leyti starfa áfram undir eigin vörumerki og stjórnendum.