Þingfundir nýafstaðins þingvetrar stóðu samtals yfir í 844 klukkustundir og 21 mínútu.
Þeir voru alls 131 talsins og sá lengsti stóð í 13 og hálfan tíma. Meðallengd þingfunda var 6 klukkustundir og 23 mínútur.
Umræðan um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu stóð lengst. Þingmenn ræddu hana í samtals rúmlega 58 klukkustundir.
Eitt frumvarp ekki samþykkt
Framlögð frumvörp voru 188 og urðu 105 þeirra að lögum. Eitt frumvarp var ekki samþykkt og 83 voru óútrædd. Þingsályktunartillögur voru 95 – 22 þeirra voru samþykktar en 73 óútræddar.
Samtals höfðu verið haldnir 500 fundir hjá fastanefndum þegar þingi var frestað. Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra voru samtals 267.