Átök virðast hafa blossað upp aftur í Líbanon í dag þrátt fyrir vopnahlé Hezbollah-samtakanna og Ísraels. Líbanski ríkisfjölmiðillinn segir Ísraela hafa gert loftárás á suðurhluta landsins eftir að vopnahléið tók gildi. Á fimmta tug hafa látið lífið og nærri hundrað særst í árásum Ísraelshers síðan á miðnætti.
Opinbera fréttastofan NNA í Líbanon sagði Ísraelsher hafa gert loftárás á Jezzine, sem er um fjörutíu kílómetra suður af höfuðborginni Beirút. Einn fréttamaður sagðist einnig hafa séð dróna fljúga yfir borgina Týros. Fréttamaður AFP sagðist einnig hafa heyrt stöðugar árásir stórskotaliðs í borginni Nabatieh.
Heilbrigðisráðuneyti Líbanon segir að frá miðnætti hafi 47 manns verið drepnir í loftárásum Ísraelshers og 97 særst. Versta árásin hafi verið í Harouf þar sem níu hafi verið drepnir. Frá því að Ísraelsher hóf aftur árásir á Líbanon 2. mars, eftir hefndarárás Hezbollah vegna stríðs Bandaríkjamanna og Írans, hafa tæplega fjögur þúsund manns verið drepin og tólf þúsund særst.
Árásirnar stefndu viðræðum um næstu skref í samkomulagi Bandaríkjamanna og Írana í hættu. Þær áttu að hefjast í dag í Sviss. Í samkomulaginu var tekið fram að binda ætti enda á átök í Mið-Austurlöndum, þar með talið í Líbanon.
Joseph Aoun, forseti Líbanons, sagði við Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í símtali í dag að tryggja þyrfti alhliða vopnahlé til að viðræður við Ísrael gætu haldið áfram.
Aoun þakkaði Rubio fyrir stuðning Bandaríkjanna en lagði áherslu á að árásir Ísraelsmanna á líbanskt landsvæði hætti. Það gerist með alhliða vopnahléi.