Hér kemur nýtt myndband frá Aðalheiði Jensen sem fjallar um samskipti kynjanna, sambönd og lífið almennt.
Í þessu myndbandi fjallar Aðalheiður um mismunandi þarfir sem geta verið til staðar í nánum samböndum. Margar konur þurfa tengingu til að finna löngun í kynlíf, á meðan margir karlmenn upplifa að kynlíf sé leið til að finna tengingu. Hún bendir á að fegurðin felist oft í því að mæta hvort öðru á miðri leið og reyna að skilja þarfir hvors annars.
Aðalheiður rekur Tilveruna Barre og yoga stúdíó þar sem hún hefur um árabil unnið með fólki að andlegri og líkamlegri vellíðan. Þar býður hún meðal annars upp á námskeið, fyrirlestra og ráðgjöf.
View this post on Instagram