Fjörutíu og fjögur mansalsmál komu á borð Bjarkarhlíðar í fyrra eða nærri eitt á viku að meðaltali.
Dómsmálaráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra gerðu í dag fjögurra ára samning við Bjarkarhlíð og ætla að setja sextíu milljónir króna til verkefna sem tengjast mansali.
„Ég myndi segja að þetta endurspegli áherslur ríkisstjórnarinnar og stjórnvalda að ná betri árangri varðandi þennan málaflokk,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. Hún bendir á að þolendur mansals séu oft þolendur kynbundins ofbeldis. „Mér finnst passandi að þessi samningur hafi verið undirritaður í dag, 19. júní.“
„Þetta er málaflokkur sem er því miður ört vaxandi hér á landi og við sjáum í rauninni bara toppinn á ísjakanum,“ segir Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar. „En við vitum að það er mikið framboð vegna þess að það er mikil eftirspurn.“
„Reykjavík er að verða þekkt fyrir vændismarkaðinn sinn á erlendum vettvangi,“ segir Þorbjörg Sigríður.
„Það eru auðvitað íslenskir kaupendur sem bera uppi þennan markað,“ segir Jenný Kristín. „Ferðamenn koma og fara á meðan Íslendingarnir búa hér og þeir halda eftirspurninni svo sannarlega gangandi.“
Áttatíu menn keyptu vændi hjá sömu konunni á þremur dögum
Greint var frá því á Vísi í dag að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefði ráðist í handtökur á grunuðum vændiskaupendum og rannsókn vegna gruns um að kínverskar konur væru þolendur mansals og gerðar út í vændi.
„Ég get auðvitað ekki tjáð mig um þetta mál sem er í rannsókn núna, en almennt hafa kínverskar konur verið í verri stöðu, bæði hefur þjónusta þeirra verið að kosta minna og við sjáum að símaverin eru að bóka meira á þær,“ segir Jenný Kristín.
„Það eru dæmi um það að það hafi verið 80 kaupendur á þremur dögum hjá sama þolandanum.“
Þorbjörg Sigríður bendir á að sterk tengsl séu á milli mansals og sölu vændis og annarrar skipulagðrar glæpastarfsemi.
Hún vill herða löggjöf vegna vændiskaupa og hyggst leggja fram frumvarp þess efnis í haust. „Það er meginregla að birta nöfn sakborninga, mér finnst að það sama eigi að gilda í þessum málum sem öðrum og mér finnst alvarleikastig þessara mála vera með þeim hætti að þeim eigi að ljúka með ákæru en ekki með sekt.“
„Ég er ekki að setja einhverja sérreglu í þessum málum, heldur einfaldlega að kippa þessari undantekningu úr sambandi þannig að sama eigi við um vændiskaupamál og önnur sakamál: Nöfn sakborninga eru birt nema þá helst til að vernda hagsmuni brotaþola og það á sjaldnast við í þessum málum.“
Telurðu að nafnbirting muni hafa fælingarmátt? „Hiklaust gerir hún það.“