Gert var ráð fyrir um fimmtíu þúsund gestum á Þingvelli í tilefni af fimmtíu ára afmæli lýðveldisins þann 17. júní 1994, en þeir urðu mun fleiri, eða um 75 þúsund, og miklar umferðartafir settu svip sinn á daginn. Svo mikinn að hátíðin var einatt kölluð þjóðvegahátíðin mikla.
Talið er að allt að fimmtán þúsund manns sem lögðu af stað til Þingvalla hafi aldrei komist alla leið. Mörg þúsund eyddu bróðurpartinum af deginum í bílaröðinni.
Umferðin var þó ekki það eina sem fór úr skorðum. Kamrar fylltust fljótt eða biluðu og langar biðraðir mynduðust þar líka.