Alþingi hefur lokið störfum þennan veturinn en þingfundi var slitið á fimmta tímanum í dag. Fundum hefur verið frestað til 8. september. Af 188 frumvörpum sem lögð voru fram á þinginu urðu 105 að lögum.
Meðal frumvarpa sem samþykkt voru í dag var frumvarp Kristrúnar Frostadóttur um stofnun rannsóknarnefndar sem skoða á Bakkakotsmálið.
Þá var samþykkt frumvarp atvinnuvegaráðherra um stofnun atvinnuveganna. Með þeim lögum verður allt eftirlit með matvælum sett undir nýja ríkisstofnun og Matvælastofnun, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs verða lagðar niður.
Rætt var við Ólaf Adolfsson, þingflokksformann Sjálfstæðisflokksins, og Guðmund Ara Sigurjónsson, þingflokksformann Samfylkingarinnar, í kvöldfréttum sjónvarps.