Sjóherinn í El Salvador gerði rúmlega sex tonn af kókaíni upptæk sem verið var að smygla í tveimur skipum á Kyrrahafi í fyrradag. Heildarverðmæti fíkniefnanna er talið vera um 167 milljónir dollara, eða um 20 milljarðar íslenskra króna.
Sex voru handteknir í aðgerðum sjóhersins.
Forseti El Salvador, Nayib Bukele, sagði í færslu á X í gær að yfirvöld ætluðu að halda áfram að berjast gegn fíkniefnasmygli á svæðum þar sem smyglið hefur fram til þessa farið fram óáreitt.
Yfirvöld í El Salvador hafa gert yfir 13 tonn af kókaíni upptæk það sem af er þessu ári. Verðmæti þess er metið á 322 milljónir dollara.