Vísindamenn hafa greint fyrsta tilfellið af fuglaflensu, af H5-afbrigði, í Ástralíu í fyrsta sinn. Þessi bráðsmitandi veira hefur nú greinst í öllum heimsálfum.
Fuglaflensan greindist í brúnskúmi á vesturströnd Ástralíu og grunur leikur á fleiri smituðum fuglum. H5-afbrigði af fuglaflensu veldur alvarlegum veikindum í fuglum, bæði hænsnfuglum og villtum fuglum, en getur einnig smitast í spendýr. Dánartíðni er há meðal sýktra dýra.
Forsætisráðherra Ástralíu, Antony Albanese, sagði að fuglaflensusmitið væri áhyggjuefni og stjórnvöld ætluðu að gera viðeigandi ráðstafanir til að reyna að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu veirunnar.
Fuglaflensa gæti ógnað mörgum dýrategundum
Um helmingur allra villtra fuglategunda og um 83% af spendýrum í Ástralíu eru af dýrategundum sem finnast ekki annars staðar. Áform eru um að vernda 35 tegundir með því að efla ræktun þeirra með skipulögðum hætti, þar sem fuglaflensa er talin geta ógnað stofni þessara tegunda.
Meðal þeirra dýra sem ræktuð verða eru Tasmaníudjöfullinn, svartir svanir, litlar mörgæsir og áströlsk sæljón sem eru í sérstakri hættu á að fá fuglaflensu.