Í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands segir að í dag verði lægð fyrir norðaustan land og áttin því norðlæg, víða 5-13 m/s.
Áfram verði rigning á Norður- og Austurlandi og hiti 5 til 10 stig, en þurrt og allvíða bjart sunnan heiða með hita að 16 stigum, en þó eru líkur á síðdegisskúrum við suðurströndina.
Á morgun, sunnudag er svo útlit fyrir hæglætis veður á landinu, stöku skúrir á stangli og það hlýnar heldur fyrir norðan og austan, að sögn veðurfræðingsins.