Til átaka kom milli tveggja manna á þrítugsaldri fyrir framan Dönsku kránna í miðbæ Reykjavíkur um miðnætti í nótt. Lögregla handtók mennina en annar þeirra var látinn laus skömmu síðar. Hinn var vistaður í fangageymslu og situr þar enn.
Maðurinn var undir talsverðum áhrifum áfengis eða vímuefna að sögn Skúla Jónssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns. Hann segir manninn hafa verið með hníf á sér en að hann hafi verið yfirbugaður og hnífurinn tekinn af honum.
Þá var tvítugur maður handtekinn við Nettó í Mjóddinni um hálf tvö í nótt, einnig fyrir líkamsárás. Starfsfólk hafði reynt að hafa afskipti af honum eftir að hann yfirgaf verslunina án þess að greiða fyrir vörur. Maðurinn var ölvaður og réðst á starfsfólkið.
Skúli segir þau ekki hafa hlotið alvarlega áverka en að maðurinn hafi verið vistaður í fangageymslu lögreglu í kjölfarið. Hann hafi verið yfirheyrður í morgun en sleppt að skýrslutöku lokinni.