Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Facebook. Þar segir að á Siglufirði hafi mælst töluverð rigning og búist við áframhaldandi úrkomu fram á kvöld.
Jarðvegur sé víða orðin mjög mettaður og því geti jarðvegsskriður, aurskriður og grjóthrun orðið í bröttum hlíðum.
„Sýnið aðgát á ferðum ykkar, dveljið ekki undir giljum og bröttum hlíðum að óþörfu og verið vakandi fyrir breytingum í umhverfinu,“ segir í tilkynningu.