Fólk er þegar byrjað að streyma á svæðið en klukkan ellefu hófst dagskrá á Valhallarsviðinu. Reiknað er með að túnið steinsnar frá Almannagjá fyllist af tuttugu þúsund tónleikagestum þegar líður á daginn. Jakob Frímann Magnússon, skipuleggjandi tónleikanna, segir von á góðum degi.
„Það lítur vel út. Bongóblíða og stemning. Allt klárt og fólk að streyma að á staðinn.“
Tónleikarnir standa til miðnættis. Aðal númer dagsins eru tónleikar hljómsveitarinnar Kaleo sem hefjast klukkan hálf þrjú.
„Þeir koma á svið strax á eftir opnunarræðu forseta sem er klukkan tvö og verða þá í unplugged búningi það er að segja útgáfu með gítara og slagverk. Svo koma þeir aftur klukkan níu með fullu rafmagni, fullum skrúða.“
Tíðar rútuferðir
Á annað þúsund starfsmanna vinna að tónleikunum og hefur búnaður og hljóðfæri verið fluttur í tonnatali á svæðið. Jakob hvetur fólk til að leggja af stað sem fyrst til að forða sér undan umferðarþunga. Rútur fara frá Klettagörðum 27 á hálftíma fresti og lagði sú fyrsta af stað klukkan tíu í morgun.
„Og eru á hálftíma fresti út daginn. Svo er hægt að taka rútu aftur til baka ef menn eru orðnir saddir tóndaga.“
Búast megi við mikilli stemningu í dag.
„Ég held við ættum bara að búa okkur undir dásamlegan dag í okkar yndislega þjóðgarði og fá að njóta tónlistar, menningar og sögu. Njóta bergmálssögunnar og þeirrar dýrðar sem þar blasir við.“
Bylgjulestin er mætt á Þingvelli og verður þar til klukkan fjögur. Tónleikum Kaleo verður útvarpað í beinni á Bylgjunni klukkan hálf þrjú.