Hér koma myndir af fyrri tónleikum Kaleo í dag. Þeir hétu Kaleo acoustic og voru með öðruvísi sniði en seinni tónleikar hljómsveitarinnar sem verða klukkan 21-22:30.
Hljómsveitin samanstendur af Jökli Júlíussyni, Davíð Antonssyni, Daníel Kristjánssyni, Þorleifi Gauki Davíðssyni og Rubin Pollock.
Halla Tómasdóttir forseti Íslands ávarpaði hátíðargesti á Þingvöllum.
Egill Tómasson svæðisstjóri var í óðaönn að stýra undirbúningi þegar fréttamaður náði tali af honum í hádeginu. Um þúsund manns eru við störf á hátíðinni, auk nærri 100 lögreglumanna.
„Það er kominn her af fólki að fara í allar stöður, öryggisgæsla og fleira og allir starfsmenn í tæknideildum, matarvagnar, barstaff og annað. Það er mikið „action“ núna, verið að leggja lokahönd á síðustu „díteilin“, þetta lítur mjög vel út,“ segir Egill.
„Það er náttúrulega sól og blíða þannig að fólk þarf ekkert að koma með regnhlífarnar sínar og fólk getur setið í grasinu. Það er dásamleg stemning hérna.“
Tónleikagestir eru farnir að streyma á Þingvelli. Lögreglan á Suðurlandi segir að umferðin sé þétt og gangi rólega en örugglega. Hún hvetur gesti til að sýna þolinmæði og tilitssemi í umferðinni.
Ragnar Visage ljósmyndari RÚV er á Þingvöllum. Hér koma nokkrar myndir frá tónleikasvæðinu.
Kaleo stigu á svið á stóra sviðinu, Dynbergi, rétt í þessu.
Tónleikarnir á Dynbergi eru í beinni útsendingu á Bylgjunni og á vef Vísis. Þá er hægt að horfa á tónleikana í Sjónvarpi Símans í opinni dagskrá.
Dagskráin á stóra sviðinu er svona:
- 14:00- 14:20 - Opnunarathõfn
- 14:30 - 15:00 - Kaleo acoustic
- 15:10 - 15:40 - Stuðmenn
- 16:00 - 16:30 - GDRN
- 16:45 - 17:15 - Mugison
- 17:30 - 18:15 - Helgi Björns
- 18:30 - 19:15 - Hjálmar
- 19:30 - 20:30 - Emiliana Torrini
- 21:00 - 22:30 - Kaleo
- 22:40 - 23:15 - KK
- 23:30 24:00 - Júníus Meyvant
Góðan daginn.
Tónlistarhátíðin Bergmál er haldin á Þingvöllum í dag. Hljómsveitin Kaleo er meðal þeirra sem standa að baki tónleikunum. Hún stígur á svið í fyrra skiptið á hátíðinni klukkan 14:30. Að auki við hana koma fram hljómsveitir og tónlistarfólk á borð við KK, GDRN, Júníus Meyvant, Mugison, Helgi Björns og Emiliana Torrini – svo einhver séu nefnd.
Töluverður viðbúnaður er vegna hátíðarinnar en unnið hefur verið að skipulagi hennar í dágóðan tíma. Von er á um 20 þúsund tónleikagestum á Þingvelli í dag. Bergmál er sólstöðuhátíð enda dagurinn lengstur á Íslandi yfir þessa helgi. Sumarsólstöður eru á morgun, 21. júní.
Ég heiti Guðmundur Atli Hlynsson og flyt fregnir af Þingvöllum í dag.