Fréttastofa sló á þráðinn til að taka stöðu á umferðinni vegna tónlistarhátíðarinnar Bergmáls sem fram fer á Þingvöllum. Pétur segir umferð þó ganga þokkalega þrátt fyrir að margir bílar væru á ferðinni. Engin óhöpp hafi orðið í umferðinni þegar þessi frétt er skrifuð.
Hljómsveitin Kaleo spilar nú á sviðinu steinsnar frá Almannagjá. Hlusta má á tónleikana í beinni á Bylgjunni.
Fréttamaður Sýnar er meðal þeirra sem nú eru í bílaröð. Bílaröðin hreyfist hægt og er umferðarteppa frá því fyrir Grafningsafleggjara.
Áttu mynd af bílaröðinni? Þú getur sent okkur myndir hér.
Áttu mynd af bílaröðinni? Þú getur sent okkur myndir hér.