Íransher hefur lokað Hormússundi á ný að sögn stjórnar hersins. J.D. Vance varaforsteti Bandaríkjanna sagði í viðtali við Fox News í dag að hann sæi engin merki um að sundið væri lokað.
Stjórn Íranshers sagði að ákvörðun um að loka sundinu aftur hafi verið tekin vegna áframhaldandi árása Ísraela á suðurhluta Líbanon. Stjórn Íranshers segir það brot á friðarsamkomulagi við Bandaríkin.
„Við tilkynnum hér með að Hormússundi verður lokað fyrir skipaumferð. Við tökum fram að þetta er fyrsta skrefið í að bregðast við því að óvinurinn hefur ekki staðið við samkomulagið. Ef árásir halda áfram verða frekari aðgerðir skipulagðar til að þrýsta á óvininn til að verða við ákvæðum samkomulagsins,“ sagði stjórn hersins í ávarpi í ríkissjónvarpi í Íran.
Það var á föstudaginn í síðustu viku sem samkomulag um frið náðist á milli Bandaríkjanna og Írans sem samanstendur af fjórtán meginatriðum. Olíuverð tók strax að lækka eftir að tilkynnt var um samkomulagið en um fimmtungur af allri olíu heims fer alla jafna um Hormússund.
Í samningnum segir meðal annars að ríkin skuldbindi sig til að ná lokasamkomulagi um frið innan sextíu daga. Íran opnaði Hormússund og Bandaríkin afléttu herkví í sundinu. Það er aðeins rétt rúm vika síðan.
Einnig fólst í samkomulaginu að bundinn yrði tafarlaus og varanlegur endir á allar hernaðaraðgerðir, þar á meðal aðgerðir Ísraela í Líbanon. Embættismenn í Ísrael brugðust illa við tíðindunum og sögðu sumir landið ekki bundið af samningi Bandaríkjamanna og Írana.
Ísraelar náðu síðan samkomulagi við Hezbollah-samtökin í Íran í gær um að hætta árásum. Þrátt fyrir samkomulag um vopnahlé hafa árásir þó haldið áfram.