Það er óhætt að segja að viðbrögð vegna viðtals við Sigurlínu Guðmundsdóttur í Spjallinu með Frosta Logasyni hafi vakið mikil viðbrögð. Í viðtalinu kemur fram að palestínskur hælisleitandi sem hún var áður gift, hafi fengið tilkynningu um kosningarétt í sveitarstjórnarkosningum þrátt fyrir að hafa fengið synjun um dvalarleyfi og verið gert að yfirgefa landið.
Hún segir einnig frá andlegu ofbeldi sem maðurinn beitti hana, stjórnsemi og því hvernig sambandinu lauk. Að hennar sögn varð það til þess að hún fór að kynna sér stöðu hans sem hafi leitt til þess að hann viðurkenndi að vera Hamasliði.
Íslensk kona segist hafa giftst Hamas-liða á Íslandi: „Ég var með Hamas-liða inni á heimilinu mínu“
Í nýju broti úr sama viðtali ræðir hún hins vegar um stöðu hans gagnvart íslenskum stjórnvöldum.
Segir að honum hafi verið gert að yfirgefa landið
Sigurlín segir að maðurinn hafi sótt um síðasta dvalarleyfi sitt á grundvelli þess að skortur væri á vinnuafli hér á landi en fengið synjun.
„Hann fékk synjun á því í febrúar og honum var gert að yfirgefa landið fyrir mars, allavega, og hann er ennþá hérna og hann er ennþá að skrifa opinberlega og hvers vegna er ekki búið að vísa honum úr landi ennþá, ég bara veit það ekki,“ segir hún.
Þá bendir hún á að hann hafi sjálfur fjallað um stöðu sína á samfélagsmiðlum og meðal annars greint frá því að hann mætti ekki vinna og ætti yfir höfði sér brottvísun.
Segir hann hafa fengið tilkynningu um kosningarétt
Það sem vakti þó mesta athygli hennar var að samkvæmt frásögn hennar hafi maðurinn síðar fengið tilkynningu frá Þjóðskrá um að hann mætti kjósa í sveitarstjórnarkosningunum.
„Hann fékk synjun í febrúar og missir þá lögheimili sitt á Íslandi en síðan fær hann bréf inn á Ísland appið sitt fyrir sveitarstjórnarkosningar um að hann megi kjósa í sveitarstjórnarkosningum,“ segir Sigurlín.

Hún segist í kjölfarið hafa flett honum upp hjá Þjóðskrá.
„Ég sló inn kennitöluna hans til að gá hvar hann væri með lögheimili og það var í Palestínu.“
Birti sjálfur skjáskot
„Hann tekur skjáskot af þessu sjálfur og postar þessu á Facebookið sitt, að nú eigi að vísa honum úr landi en hann megi samt kjósa í sveitarstjórnarkosningum,“ segir hún.
Á Facebook síðu sinni birti maðurinn einnig færslu þar sem hann skrifaði að hann hefði fengið skilaboð um kosningarétt þrátt fyrir að ákvörðun um brottvísun hefði þegar verið tekin.

„Ég hef rétt til að taka þátt í framtíð landsins, en ekki rétt til að vera hluti af henni. Ég get kosið í kosningunum en ég get ekki verið áfram til að sjá niðurstöðuna,“ skrifaði hann meðal annars.
Hann birti jafnframt skjáskotið sem Sigurlín minntist á, af tilkynningu frá Þjóðskrá þar sem fram kemur að hann megi kjósa í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fóru 16. maí.
Eftir stendur sú spurning hvernig þessi staða gat komið upp. Hvort skýringar fáist á því á næstu dögum á eftir að koma í ljós.
Hér fyrir neðan má sjá stutt brot úr spjalli Frosta Logasonar og Sigurlínu en viljir þú sjá viðtalið í heild mælum við með áskrift á Brotkast.is