Öflug hitabylgja gengur yfir stóran hluta Evrópu og eru hitamet fyrir júnímánuð víða slegin. Yfirvöld í meðal annars Ungverjalandi, Póllandi, Ítalíu, Frakklandi, Spáni, Grikklandi, Þýskalandi og Sviss hafa varað fólk við hættulegum hita, sem ekki er búist við að lát verði á næstu daga.
Hitabylgja reið einnig yfir í Evrópu í maí og hitamet voru ítrekað slegin í meðal annars Bretlandi og Frakklandi.
Í fyrradag mældist hitinn í þýsku borginni Saarbrücken 35,6 gráður, sem er mesti hiti sem mælst hefur í Þýskalandi það sem af er ári. Þýska veðurstofan spáir allt að 38 gráðu hita á næstu dögum og hitaviðvaranir eru í gildi á flestöllum svæðum í landinu.
Sebastien Lecornu, forsætisráðherra Frakklands, boðaði til neyðarfundar í frönsku ríkisstjórninni í morgun vegna hitans. Rauðar og appelsínugular hitaviðvaranir eru í gildi í 80 sýslum landsins. Búist er við að hitinn haldi áfram að hækka á næstu dögum og verði á bilinu 37-42 gráður.
Franska veðurstofan varar við því að hitabylgjan gæti orðið jafn löng og alvarleg og versta hitabylgjan í sögu landsins sem var í ágúst 2003.
Fjölmörg bæjaryfirvöld hafa aflýst árlegum tónlistarhátíðarhöldum sem hefð er fyrir að halda í júní. Í öðrum sýslum þar sem rauðar viðvaranir eru í gildi hafa yfirvöld gripið á það ráð að banna áfengisneyslu á hátíðinni til að tryggja öryggi hátíðargesta.
Hitabylgjan nær einnig til Spánar og eru ýmist rauðar og appelsínugular viðvaranir í gildi í landinu á mánudag og þriðjudag.
Spænska veðurstofan spáir 39 gráðum á Íberíuskaganum og á Baleareyjunum á þriðjudaginn og allt að 42 gráðum í dölum á svæðinu. Hiti getur náð 44 gráðum á afskekktum svæðum. Ástandið er svipað í Portúgal og á Ítalíu. Stormviðvörun er í gildi í öllum löndunum.
Bretland hefur einnig gefið út appelsínugula hitaviðvörun fyrir mánudag og þriðjudag á flestum svæðum í suðausturhluta og miðhéruðum Englands og hluta af Suður-Wales. Allt að 34 stiga hiti er í kortunum þar.
Hitabylgjan stafar meðal annars af hita frá Afríku og hitastigið gæti á nokkrum stöðum vikið um 10-13 gráður frá meðallagi loftslags í lok júní á árunum 1991-2020. Vísindamenn segja loftslagsbreytingar valda tíðari og öflugri hitabylgjum um alla Evrópu, sem ógni heilsu fólks og hafi slæm áhrif á efnahagskerfið yfir sumarmánuðina.