Mikil stemmning er á Þingvöllum þar sem tónlistarhátíðin Bergmál stendur nú yfir, en búist er við allt að 20 þúsund gestum á svæðinu.
Blíðskaparveður er á Þingvöllum og áhyggjur af því að mega ekki hafa með sér regnhlífar og útilegustóla á svæðið hafa líklega verið óþarfar. Tónleikagestir hafa hafa margir hverjir breitt út teppi og komið sér vel fyrir framan við sviðið.
Þung umferð hefur verið á Þingvelli eftir hádegi í dag og hefur fólk verið á þriðja tíma að keyra frá Reykjavík.
Hljómsveitin KALEO er auðvitað aðalnúmerið á hátíðinni en þeir héldu svokallaða acoustic tónleika fyrr í dag, og stíga svo aftur á svið klukkan 21 í kvöld.
Stuðmenn, Mugison, GDRN og Helgi Björns hafa haldið uppi stuðinu á aðalsviðinu og Hjálmar og Emiliana Torrini munu koma fram á undan KALEO. Þá munu KK og Júníus Meyvant ljúka dagskránni í kvöld.






