Veðurfræðingur Veðurstofu Íslands segir í hugleiðingum sínum að nú í morgunsárið sé áhrifasvæði lægðarinnar sem haldið hefur úrkomubakka upp að Norður- og Austurlandi að undanförnu komið norður og austur af landinu.
Í dag megi búast við hægum vindi, yfirleitt þurrt og ætti að sjást vel til sólar í öllum landshlutum.
Síðdegis og í kvöld megi þó búast við stöku skúrum. Hiti víða á bilinu 10 til 17 stig, hlýjast á Suðausturlandi.
Á morgun, mánudag, er síðan útlit fyrir fremur hæga suðlæga átt með skúrum og hita á bilinu 10 til 15 stig.
Svo er að sjá að á þriðjudag nái skil lægðar inn á suðaustanvert landið með rigningu á köflum á þeim slóðum en í öðrum landshlutum verður áþekkt veður áfram.