Repúblikaninn Spencer Cox, ríkisstjóri Utah, telur að sá stjórnmálaflokkur sem tekst að eyða eitraða andrúmsloftinu í þjóðfélagsumræðunni í Bandaríkjunum komi til með að sigra næstu forsetakosningar. Hann gaf nýverið út bók þar sem hann fer yfir leiðir til að græða sár síðustu ára og segir það vera mögulegt að komast að lausnum þvert á flokkslínur. Rúm 70 Bandaríkjamanna séu á móti stöðunni eins og hún er í dag, hatrið á eitruðu umræðunni sé orðið mikið og talar hann um „örmagna meirihlutann“, sem er vísun í orð Richard Nixon, fyrrum forseta landsins, um „þögla meirihlutann“.
Trumpistinn sem vill græða sárin í umræðunni - „Örmagna meirihlutinn“ búinn að fá nóg af skautun