Donald Trump Bandaríkjaforseti hótar að slíta á viðskiptatengsl við ríki Evrópusambandsins fari svo að Kanada öðlist aukaaðild að sambandinu. Hann sagðist aðspurður á blaðamannafundi í gærkvöld finnast hugmyndin fáránleg og varaði við afleiðingunum ef af yrði.
„Þá ætla ég annaðhvort að setja á mjög háa tolla eða hætta viðskiptum við Evrópu á mörgum sviðum,“ sagði Trump. „Þetta er í lagi sé það gert af góðum hug en alls ekki ef fjandskapur býr að baki,“ bætti forsetinn við og ítrekaði hótunina um háa tolla á Evrópuríki.
Ursula von Leyen ámálgaði í gær hugmyndina um að Kanada yrði fyrsta ríki heims til að fá aukaaðild á þingfundi Evrópusambandsins þar sem forsætisráðherrann Mark Carney var viðstaddur.
Stjórn hans hefur viljað auka samskipti við ríki Evrópu eftir að samkomulagið við Bandaríkin tók að stirðna.
Trump sagði á blaðamannafundinum að hræðilegt væri að eiga í viðskiptum við Kanada. Þarlend stjórnvöld settu í ágúst 15 til 50 prósenta tolla á ýmsar bandarískar vörur sem andsvar við tollum Bandaríkjastjórnar eftir að slitnaði upp úr viðræðum um tollasamning.