Körfuboltamaðurinn Tristan Thompson settist niður með fyrrverandi kærustu sinni og barnsmóður, Khloé Kardashian, í hlaðvarpi Khloé, Khloé in Wonderland. Þar sagðist Tristan ekki ætla að eignast fleiri börn en hann hefur nú þegar farið í herraklippingu.
Í þættinum sagði Tristan að Khloé hefði í raun hvatt hann til að láta framkvæma aðgerðina og gaf í skyn að hún hefði sett honum ákveðin mörk án þess að fara nánar út í hvað hann meinti, og Khloé sagðist hafa vissulega ýtt honum í átt að þessari ákvörðun. Khloé sagði einnig að hún ætti tvo fósturvísa sem Tristan hefði skrifað á hana, þannig að lagalega séð á hún þá ef hún vill eignast fleiri börn og þá alsystkini fyrir True og Tatum.
Tristan á fjögur börn með þremur konum, þar á meðal True og Tatum með Khloé. Parið hefur átt stormasamt samband í gegnum árin vegna ítrekaðra framhjáhalda af hálfu Tristan, en núna einbeita þau sér fyrst og fremst að því að ala upp börnin saman og virðist það ganga fáránlega vel, miðað við allt sem Tristan lét Khloé ganga í gegnum á sínum tíma.
Ég hef ekki enn fyrirgefið...
Stjörnufréttir Evu Ruzu eru í samvinnu við Extra og Sjónvarp Símans!