Sólmyrkvabátur, víkingabátur og rabbabarabátur tóku meðal annars þátt í furðubátakeppninni og dráttarvélarnar voru af ýmsum gerðum og misgamlar.
„Flúðir um versló” var nafnið á hátíð helgarinnar, sem tókst einstaklega vel en á milli átta og tíu þúsund manns mættu á Flúðir. Dagskráin var fjölbreytt eins og furðubátakeppnin í gær í Litlu Laxá. Hér er t.d. sólmyrkvabátur, sem vakti mikla athygli, og víkingabáturinn og rabbabarabáturinn svo einhverjir séu nefndir.
„Þetta er fallegasti viðburðurinn á Íslandi, búinn að vera ég veit ekki í hvað mörg ár, 20, 30, 50, 60 ár,“ segir Bergsveinn Theodórsson (Bessi hressi), forsvarsmaður hátíðarinnar.
Strákar, eruð þið ekki ánægðir með pabba ykkar og að búa hérna á Flúðum?
Jú, jú, hann er langbestur, hann kann þetta,“ segir Baltasar Breiðfjörð, sonur Bergsveins. „Já, hann er góður,“ segir Eysteinn Breiðfjörð, sem er líka sonur Bergsveins.
Það var ekki bara furðubátakeppnin sem var svona skemmtileg á Flúðum um helgina, nei, traktorstorfæran sló algjörlega í gegn en hún er alltaf mjög vinsæl. Núna tóku níu dráttarvélar með sína ökumenn þátt í keppninni. Mörg glæsileg tilþrif sáust.
„Þetta eru einhverjar þúsundir sem saman eru komnar hér til að fylgjast með strákum úr sveitinni að leika sér á gömlum traktorum í drullupolli en afþreyingin er óumdeilanleg,” segir Bergsveinn hlæjandi og alsæll með helgina á Flúðum.