Toyota á Íslandi innkallar bíla sem geta skyndilega misst afl á ferð

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Mynd: Brynhildur Jensdóttir
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun barst tilkynning um innköllun á Toyota C-HR+ árgerð 2025-2026.
Vegna galla í hugbúnaði takmarkar stjórntölva drifrafhlöðunnar ekki hleðslu sem veldur því að við vissar aðstæður getur hleðslustaða rafhlöðunnar orðið of há. Við það getur ökutækið misst afl skyndilega, jafnvel á ferð.
Eru eigendur slíkra ökutækja hvattir til að hafa samband við Toyota á Íslandi til að sjá hvort þeirra ökutæki sé innkallað.