Lögmenn Þýskalands krefjast í dag frávísunar í máli sem Níkaragva höfðaði fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag þar sem þýsk yfirvöld eru sökuð um að greiða fyrir þjóðarmorði með stuðningi sínum við Ísrael.
Málið á rætur að rekja aftur til ársins 2024 þegar dómstóllinn úrskurðaði að aðstæður réttlættu ekki kröfur Níkaragva um beitingu neyðarráðstöfunar til að stöðva alla aðstoð Þjóðverja við Ísrael, einkum sendingar á hergögnum, eftir að hernaðurinn hófst á Gaza.
Níkaragvamenn sögðu Þýskaland aumkunarvert fyrir að veita líknaraðstoð á Gaza samhliða því að útvega Ísraelum vopn. Þjóðverjar sögðu af og frá að brotið hefði verið gegn sáttmálanum gegn þjóðarmorði frá 1948 með liðsinni við Ísrael. Öll vopnasala væri í samræmi við alþjóðalög.
Þjóðverjar flytja mál sitt í dag
Málið er þó enn í gangi og í dag leggja þýsku lögmennirnir fram svokölluð bráðabirgðaandmæli gegn lögsögu dómstólsins í málinu og því að tilteknar dómkröfur Níkaragva séu tækar til meðferðar dómstólsins. Nánari upplýsingar liggja ekki fyrir um lagarök Þýskalands.
Lögmenn Níkaragva svara kröfum Þjóðverja á morgun áður en fulltrúar beggja ríkja fá annað tækifæri til að ávarpa dómstólinn á miðvikudag og fimmtudag. Alþjóðadómstóllinn tekur sér yfirleitt hálft ár til að skera úr málum og ákveður annaðhvort að vísa þessu máli frá eða taka það til efnislegrar meðferðar.