Eldur kom upp í vélarrúmi Barða NK 120, skips út fyrir ströndum Færeyja í gær og skipið rak vélarvana í rúma þrjá klukkutíma þangað til að færeyskt varðskip kom til bjargar.
Teódór Elvar Haraldsson skipstjóri á Barða segir að öllu máli hafi skipt að enginn hafi verið í vélarrúminu þegar eldurinn kviknaði. Hann segir svona átök vera upp á líf og dauða. „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta.“
Ekki er enn komið í ljós nákvæmlega hvað skeði en hann segir allt benda til þess að eldsneytislögn hafi farið í sundur. Það hafi blossað upp stór og mikil eldsprenging og vélarrúmið hafi orðið alelda á svipstundu.
Teódór segir áhöfnina hafa verið duglega að sinna eldvarnar- og brunaæfingum um borð og það hafi svo sannarlega skilað sér í gær. Áhöfnin hafi verið fljót að kæfa eldinn en tjónið sé þó töluvert. „Það varð engum meint af en þetta voru náttúrulega mikil átök og stress á meðan á þessu stóð.“
Færeyska björgunarmiðstöðin í Þórshöfn staðfestir í samtali við Vísi að þeim hafi borist neyðarkall frá Barða skömmu fyrir klukkan þrjú í gær. Skipið var þá statt um 15 sjómílum norðan af Færeyjum.
Hann sjálfur hafi strax kallað eftir neyðaraðstoð. Skipið hafi verið tekið í tog um kvöldmatarleytið og þeir hafi komið í höfn í Færeyjum í morgun, tólf tímum seinna. Teódór segir alla áhöfnina dauðfegna að komast á hótel og hvíla sig eftir átökin.