Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að verðbólga væri undir forsenduákvæði kjarasamninga ef ekki væri fyrir átökin í Íran. Hún segist hafa þrýst á Donald Trump Bandaríkjaforseta að finna friðsamlega lausn á deilunni.
Stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins hafa róið að því öllum árum að koma verðbólgu undir 4,7 prósenta markið til að koma í veg fyrir að forsenduákvæði kjarasamninga verði virkjað í haust. Olíuverðhækkanir vegna átakanna í Íran þrýsta hins vegar upp verðbólgu sem stendur nú í 5,2 prósentum og eftir að átökin blossuðu upp á ný í vikunni er borin von að hún hjaðni að marki á næstu mánuðum.
Trump tók skýr skilaboð til sín
Þetta eru vonbrigði, segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sem tók málið upp við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, á nýafstöðnum leiðtogafundi NATO í Ankara í Tyrklandi. „Ég kom skýrum skilaboðum til Donalds Trump frá íslenskum stjórnvöldum þar sem við hvöttum til að átökunum myndi linna og hann myndi beita diplómatískum aðferðum. Hann er mjög meðvitaður um að það þarf að stöðva þessi átök. Það eru auðvitað allar þjóðir sem sátu við þetta hringborð sem líða fyrir átökin, bæði óstöðugleika í Miðausturlöndum og líka olíuverð. Þannig að hann tekur þetta til sín og svo þarf maður að vinna að því að diplómatískum leiðum sé beitt.“
Saknar tilmæla frá SA
Kristrún ítrekar að kjarasamningar séu enn í gildi. Stjórnvöld séu að reyna að finna leiðir til að koma í veg fyrir að kostnaðarhækkanir skili sér sjálfkrafa út í verðlag. Af hálfu stjórnvalda séu hallalaus fjárlög, sem lögð verða fram í september, stærsta framlagið en aðrir þurfa að fylgja með. „Ég hef komið þeim skilaboðum til forsvarsmanna Samtaka atvinnulífsins að ég hefði gjarnan viljað sjá tilmæli með einum eða öðrum hætti til fyrirtækja að taka þátt. Að halda aftur af verðlagshækkunum. Ég ætla ekkert að fella neina dóma hvað það varðar en við vitum að við erum í þeirri stöðu að það er ákveðnum hækkunum velt út í verðlagið.“