Lögregla var einnig kölluð til í gærkvöldi eða nótt þegar kona neitaði að greiða fyrir veitingar á veitingastað. Var hún handtekin og vistuð í fangageymslu.
Þá segir frá hópi ungmenna sem var að vera til vandræða, meðal annars með grjótkasti, auk þess sem lögregla hafði afskipti af ungmenni á rafhjóli. Var foreldrum viðkomandi gert viðvart.
Nokkrir voru stöðvaðir í umferðinni, meðal annars einn sem ók án öryggisbeltis.