Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í gærkvöldi og í nótt en alls var 61 mál skráð í kerfum lögreglu á tímabilinu frá klukkan 17 í gær til klukkan fimm í morgun. Þrír eru vistaðir í fangageymslu lögreglu eftir nóttina.Í umdæmi lögreglustöðvar 1 var tilkynnt um þrjá einstaklinga í slagsmálum á bensínstöð. Lögregla fór á vettvang og er málið í rannsókn.Þá var tilkynnt um innbrot og þjófnað í fyrirtæki í sama umdæmi. Hinir grunuðu voru farnir af vettvangi þegar lögreglu bar að garði og er málið í rannsókn.
Þrír slógust á bensínstöð – Sérkennilegt atvik í bílakjallara