Herjólfur hóf siglingar að nýju í morgun samkvæmt sumaráætlun að lokinni viðgerð á rafmótor skipsins. Framkvæmdastjóri segir bjartari tíma fram undan og sumarbrag yfir Vestmannaeyjum.
Hann skilur gremju íbúa við Breiðafjörð vegna tilfærslu Baldurs undanfarnar vikur og segir mikilvægt að gera aðrar ráðstafanir ef Baldur eigi ekki að halda áfram að vera varaskip Herjólfs.
Miklar raskanir hafa verið á starfsemi Herjólfs síðustu mánuði sem hafa haft umtalsverð áhrif á samgöngur til og frá Vestmannaeyjum. Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs, segir þrautagöngu skipsins vonandi lokið.
„Það sem við höfum verið að takast á við það sem af er ári eru margar fjölbreyttar áskoranir. Bæði með höfnina og svo muna margir þegar bókunarkerfið brann í Amsterdam. Svo hefur verið vesen með mótorinn sem bilaði. En frá því í sumarbyrjun hefur þetta samt gengið mjög vel hjá okkur,“ segir Ólafur.
Á sunnudaginn fór Herjólfur til Þorlákshafnar þar sem lagfærður rafmótor var settur í skipið. Ólafur segir viðgerðina hafa gengið vonum framar og Herjólfur hafi því siglt aftur til Eyja í gærkvöld. Um leið sigldi Baldur aftur í Breiðafjörð en hann hefur leyst Herjólf af undanfarnar vikur.
„Nú er Herjólfur kominn í fulla sumaráætlun, átta ferðir á dag. Þannig verður það fram til 24. ágúst og það er bara nú er bara sumarbragur yfir okkur. Það er höfnin opin, skipið í lagi og við erum tilbúin til þess að taka á móti öllum gestum sem hingað vilja koma.“
Sýnir óánægju Vestfirðinga skilning
Breiðafjarðarferjan Baldur, sem er varaskip Herjólfs, var tekin úr siglingu milli Stykkishólms og Brjánslækjar í byrjun júní til að sinna auknu álagi við farþega- og ökutækjaflutninga til Vestmannaeyja. Baldur hefur því leyst Herjólf af undanfarnar vikur, við litla ánægju sveitarfélaga við Breiðafjörð.
Ólafur segist hafa orðið var við umræðuna sem skapast hafi kringum tilfærslu Baldurs og áhrif afleysingarinnar á samgöngur í Breiðafirði. Hann segir eðlilegt að menn verði óánægðir þegar þjónusta er skert.
„Við höfum auðvitað heyrt umræðuna um þetta fyrirkomulag. Baldur er varaskip Herjólfs og við vitum það að ferjur geta bilað og eins og staðan var með Herjólf sigldi hann hægar, afkastaði ekki eins miklu og átti líka erfiðara með að komast inn í Landeyjahöfn þegar aðstæður voru krefjandi. Þess vegna var Baldur færður hingað, til að það yrði ekki rof á samgöngum,“ segir Ólafur.
„Að sjálfsögðu skilur maður það að menn verði óánægðir þegar þjónustan er skert. Við höfum ekki fundið neitt nema hlýju og ég held að reiði Vestfirðinga hafi aðallega beinst að þem sem ráða þessum málum og þá einkum og aðallega að því að það skyldi ekki vera önnur ferja eða þá gamli Herjólfur sem væri þá varaskip fyrir Herjólf. “
Ólafur segir brýnt að finna annað varaskip, eigi Baldur ekki að koma í stað Herjólfs þegar þörf krefur. Það geti reynst flókið því skip með álíka haffæri séu ekki auðfáanleg.
„Ef Baldur á ekki að vera varaskip fyrir Herjólf þarf að finna eitthvað annað. Við sjáum það að skip bila og við sem erum hér á eyju þar sem umsvifin fara vaxandi megum ekki við því að það detti út dagar eða vikur þar sem við höfum ekkert skip til að sigla á milli.“